Jón Steinar Gunnlaugsson skrifar í grein sem birtist á Eyjunni að íslensk stjórnvöld hafi brugðist skyldum sínum gagnvart þjóðinni með viðbrögðum sínum við dómi Mannréttindadómstóls Evrópu í Landsréttarmálinu svokallaða. Hann undrar sig á því að lögmaður íslenska ríkisins hafi í málflutningi sínum biðlað til dómstólsins að leysa íslenska dómskerfið úr viðjum:
„Hvaða viðjum? Íslensk lög kveða alveg skýrt á um að dómskerfið hefur ekki verið bundið í nokkrar viðjar,“ skrifar Jón Steinar.
Hann bendir á að í lögum um Mannréttindasáttmála Evrópum segi að úrlausnir Mannréttindadómstólsins séu ekki bindandi hér á landi, enda hefði það ekki staðist stjórnarskránna að samþykkja það:
„Í ákvæðum stjórnarskrár okkar felst að Ísland er fullvalda ríki. Þess vegna hefði það ekki staðist íslensku stjórnarskrána að kveða svo á að úrlausnir MDE skyldu verða bindandi hér á landi“
Þess vegna hafi dómur Mannréttindadómstólsins ekki haft réttaráhrif hér en íslensk stjórnvöld hafi brugðist skyldum sínum í framhaldi af dómnum og látið eins og fullveldi landsins hefði verið framselt.
„Þau höguðu sér eins og bindandi dómur hefði verið kveðinn upp þar ytra. Með framgöngu sinni síðan hafa þau hagað sér eins og fullveldi Íslands hafi verið framselt til dómstólsins.“
Hann segir engu líkara en að stjórnvöld missi stjórn á sér þegar erlendir menn tjá sig um málefni Íslands.
„Þeir drjúpa bara höfði í lotningu yfir löglausum ákvörðunum útlendinga, sem alveg er vafalaust að ekki hafa réttaráhrif hér á landi.“