Jón Steinar Gunnlaugsson, hæstaréttarlögmaður og fyrrum hæstaréttardómari, gagnrýnir fréttastofu RÚV harðlega fyrir fréttaflutning sinn um meiðyrðamál Benedikts Bogasonar, hæstaréttardómara og formanns dómstólasýslunnar, gegn honum í pistli sínum á Eyjunni í dag. Hann segir fréttastofuna hafa klippt viðtalið við sig til og fjarlægt mikilvæg svör hans.
„Fréttastofa RÚV er kostuleg stofnun. Mér er nær að halda að þeir hafi lög að mæla sem segja hana ekki fréttamiðil heldur miklu fremur beinan þátttakanda í málaskaki samfélagsins og þá með afstöðu sem sett er fram án kinnroða,“ skrifar Jón. „Ég varð þess vafasama heiðurs aðnjótandi s.l. fimmtudagskvöld að verða skotspónn þessarar fréttamennsku.
Hann rekur þá atburðarás málsins; hvernig fyrsta frétt aðalfréttatímans hafi fjallað um fullyrðingar Vilhjálms Vilhjálmssonar, lögmanns Benedikts, um að Jón hefði reynt að hafa áhrif á val dómara í Landsrétti til að dæma umrætt mál. Meginefni fréttarinnar segir hann rangt og ekki styðjast við neitt nema „getsakir“ Vilhjálms.
„Ég hafði vissulega hringt í dómstjórann, eins og ég hafði skýrt frá í tölvupósti sem m.a. var sendur lögmanninum. Þar hafði ég komist svo að orði að ég hefði haft áhyggjur af því að dómarar sem skipuðu dóminn „yrðu ekki hlutlausir“. Þetta orðalag hafði lögmaðurinn talið sýna að ég hefði rætt við dómstjórann áður en skipað var í dóminn,“ heldur Jón áfram og segir það hreinan misskilning Vilhjálms eins og öllum sem lásu póstinn hefði átt að vera ljóst.
„Ég átti bara við hið augljósa, að þeir yrðu ekki hlutlausir við meðferð málsins. Samtalið átti ég við dómstjórann eftir að hann hafði lokið við að skipa í dóminn og tilkynnt málsaðilum það. Eftir það gat hann ekki breytt þeirri ákvörðun, þó að óskað hefði verið eftir því, en það gerði ég auðvitað ekki.“
Jón furðar sig þá á því að RÚV hafi ekki haft samband við sig fyrir fréttatímann klukkan 19, heldur beðið með það fyrir seinni fréttatímann sem var klukkan 22. „Það var svo tekið viðtal við mig sem sjónvarpað var í seinni fréttatímanum. Þar var búið að klippa viðtalið til og fjarlægja svör mín um að samtalið við dómstjórann hefði ekki átt sér stað fyrr en hann hafði lokið störfum við að skipa í dóminn, þannig að þar yrði engu breytt,“ segir hann. „Þetta voru svör við aðalefni uppsláttarins í fyrri fréttatímanum. Þessi vinnubrögð fréttastofunnar eru auðvitað ekki boðleg.“
Ekkert sé athugavert við að málsaðili eða lögmaður eigi orðastað við dómara um m,ál eftir að hann hefur lokið starfi sínu í tengslum við það. „Gegn mér er sýnilega reynt að gera úr mér tröllkall sem bægslast um eins og fíll í postulínsbúð. Það eina sem ég hef gert til að vinna mér inn óvild hjá dómaraelítunni er að segja rökstudd deili á verkum hennar. Það finnst þeim nauðsynlegt að þagga niður með rógi ef ekki vill betur.“
„Það vekur undrun mína að fréttastofa allra landsmanna skuli láta misnota sig með því að fá sig til þátttöku í þessu spili,“ segir hann að lokum.