Jón steinar: hrunadómar reginhneyksli

Jón Steinar Gunnlaugsson, lögmaður og fyrrverandi hæstaréttardómari var gestur Sigmundar Ernis í kraftmiklu og yfirlýsingaglöðu viðtali í þættinum Mannamáli á Hringbraut í gærkvöld þar sem dómskerfið fyrr of nú fékk það óþvegið, ekki síst nýfelldir hrunadómar.

Jón Steinar hefur aldrei verið feiminn við að tjá skoðanir sínar - og þess sér vel stað í þætti kvöldsins sem sjá má nú hér á vef stöðvarinnar. Þar fer greinilega maður sem er fylginn sér í meira lagi og fylgir ekki endilega straumnum þegar kemur að því að tjá sig um málefni líðandi stundar.

Þeir Sigmundur Ernir ræða æsku Jóns Steinars með drykkfelldum leigubílstjóra sem faðir hans var og móður sem var þeirrar kynslóðar að fá ekki tækifæri til mennta, en bróður hennar, Eyjólfur Konráð Jónsson hafði mikil áhrif á strákinn sem snemma varð blár, hvort heldur er í íþróttum eða pólitík.

Jón Steinar ræðir hispurslaust um drykkjuskap sinn á fyrri tíð, en hann setti tappann í flöskuna rétt ríflega þrítugur maðurinn og hefur ekki smakkað vín í hálfan fjórða áratug. Hann þakkar gömlum skólabróður sínum, Þórarni Tryfingssyni fyrir að hafa bjargað sér frá bokkunni.

Hann ræðir ástríðu sína fyrir lögmennsku, einkum réttlætiskenndina, en honum hefur oft og tíðum sviðið sáran undan því hvernig ríkisvaldið hefur getað leikið venjulegt fólk, jafnvel sárasaklaust, í krafti dómsvalds og raunar einnig sakir óvandaðra vinnubragða, mikilla anna og fljótfærni dómskerfisins, en Jón Steinar hefur lagt það í vana sinn í lögmennskunni að verja litla manninn gegn ríkinu.

Hann segir að sér hafi verið fálega tekið af Hæstarétti þegar hann var valinn þar dómari og þar hafi menn farið vel út fyrir mörk sín og reglur við að reyna að koma í veg fyrir að hann fengi stöðuna, en hámæli voru um að þar hefði vinur hans, Davíð Oddsson togað í spotta, en Jón Steinar þvertekur fyrir það; vissulega séu þeir góðir vinir og hafi verið frá því þeir hittust fyrst í laganámi - og það sé orðinn langur og farsæll vinskapur; hann greini það á þessum vini sínum í seinni tíð að hann sé orðinn markaður af stöðugum árásum og óhróðri.

Jón Steinar segir að dómsuppsaga yfir meintum gerendum hrunsins bíði dóms sögunnar - og hann verði harður, því þá muni koma í ljós að þar hafi menn farið offari og villur vegar, en líkast til liggi þá fyrir að um slíkt reginhneyksli hafi verið að ræða og því verði vart jafnað við annað í sögu dómstóla hér á landi.

Mannamál eru endursýnd í dag og um helgina, en eru sem fyrr segir einnig sjáanleg hér á vef stöðvarinnar.