Jón Stefánsson, organisti og kórstjóri Langholtskirkju í Reykjavík, lést um miðnættið í gærkvöld, 69 ára að aldri.
Fram kemur í andlátsfrétt á mbl.is að Jón fæddist 5. júlí 1946 í Vogum í Mývatnssveit. Foreldrar hans voru Stefán Sigfússon og Jóna Jakobína Jónsdóttir. Sautján ára gamall var hann ráðinn organisti Langholtskirkju og sinnti því starfi alla ævi.
Jón var alla tíð hvalreki fyrir íslenskt tónlistarlíf. Hann fagnaði 50 ára starfsafmæli sínu árið 2014 en á starfsferli sínum byggði hann upp viðamikið kórstarf með kórum Langholtskirkju og starfaði mikið með börnum.
Jón var fluttur á Landspítalann í kjölfar umferðarslyss í Hrútafirði og komst aldrei til meðvitundar.
Eftirlifandi eiginkona hans er Ólöf Kolbrún Harðardóttir.
Í kvöld kl 20:00 verður kveikt á kertum og þau sett á Klofaklett í Vogum til minningar um Jónsa eins og hann var jafnan kallaður með vina og ættingja.