Jón ólafsson segir alla söguna

Einn allra litríkasti og mikilvirkasti athafnamaður landsmanna, Jón Ólafsson sem löngum var kenndur við Skífuna, er gestur Sigmundar Ernis í viðtalsþættinum Mannamáli á Hringbraut í kvöld.

Óhætt er að segja að Jón segi alla söguna í þættinum en á köflum er viðtalið einkar persónulegt, einkum þegar hann talar um æskuárin í Keflavík þar sem pabbi hans vildi ekkert af honum vita og hann ólst upp hjá ömmu sinni og afa í anda gamla tímans, en þá fjallar hann einnig á hispurslausan hátt um skilnað sinn og Helgu Hilmarsdóttur sem hann var kvæntur um langt árabil.

Vlegengi Jóns í viðskiptalífinu er einstök, en sagan á bak við stofnun Skífunnar er afskaplega skemmtileg í frásögn Jóns í þættinum og þá er heldur ekkert dregið undan í lýsingum af stofnun Bylgjunnar, kaupunum á Stöð 2 og síðar Stöð 3 - og þegar hann yfirgaf landið eftir að hafa selt allar sínar eigur á Íslandi til Jóns Ásgeirs Jóhannesonar.

Vatnsævintýrið fær auðvitað sitt rúm í þættinum, en þar eins og stundum áður réð tilviljun för.

Mannamál eru frumsýnd  klukkan 20:00 í kvöld.

Horfðu á klippur úr þætti kvöldsins með því að smella hér: