Jón Ólafur Halldórsson, forstjóri Olís, er nýr formaður Samtaka verslunar og þjónustu (SVÞ) en aðalfundur samtakanna var haldinn í dag á Hilton Nordica. Alls bárust sjö framboð um almenna stjórnarsetu en kosið var um fjögur sæti fyrir kjörtímabilið 2019-2021.
Á fundinum var lýst kjöri fjögurra meðstjórnenda, en þeir eru Anna Katrín Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri markaðs- og sölusviðs Íslandspósts, Ari Þórðarson, framkvæmdastjóri Hreint ehf., Árni Stefánsson, forstjóri Húsasmiðjunnar, og Guðrún Jóhannesdóttir, framkvæmdastjóri Kokku ehf.
Elín Hjálmsdóttir, framkvæmdastjóri mannauðs- og markaðssviðs Eimskips, og Gunnar Egill Sigurðsson, framkvæmdastjóri Samkaupa, sitja áfram í stjórn.
Nánar á
https://www.mbl.is/vidskipti/frettir/2019/03/14/jon_olafur_nyr_formadur_svth/