Það verða tveir í meira lagi reyndir stjórnmálamenn sem rýna í þjóðmálin í fréttaskýringaþættinum Ritstjórunum á Hringbraut í kvöld, en þar eru á ferðinni fyrrverandi flokksformennirnir, ráðherrarnir og ritstjórarnir Jón Sigurðsson og Svavar Gestsson.
Þeir munu ásamt þáttastjórnandanum Sigmundi Erni velta fyrir sér hvað landsmenn geti lært af atburðum síðasta árs, en það var í einstaklega fréttnæmt, jafnt í pólitík, efnahagsmálum og viðskiptum svo fátt sé til talið. Spurt er meðal annars; hefur gagnsæið og opin stjórnsýsla tekið við af pukri, leyndarhyggju og reykfylltum bakherbergjum, eða hreinlega ekki?
Þessir fyrrum ritstjórar Tímans og Þjóðviljans munu aukinheldur velta fyrir sér hvers konar stjórn bíði landsmanna ef Sjálfstæðisflokkurinn fer í stjórn með Viðreisn og Bjartri framtíð og þá verður einnig rætt um muninn á þeirri líklegu ríkisstjórn og annarri sem nefnd hefur verið síðustu daga, samstjórn Sjálfstæðisflokks, Vinstri grænna og Framsóknar sem hefur mun sterkari meirihluta á þingi en sú fyrrnefnda.
Það verður nóg af pólitík í Rtstjórunum í kvöld, en þeir hefja upp raust sína klukkan 21:00 og verður þátturinn framvegis á þeim tíma.