Jón: „það er ekkert af tilviljun sem ég tek svo sterkt til orða“ - óásættanlegt ef ráðherra er ekki að vinna samkvæmt lögum

Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, gagnrýndi Guðmund Inga Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, harðlega á dögunum fyrir verklag sitt þegar kemur að friðlýsingum svæða á Íslandi. Í aðsendri grein í Morgunblaðinu sagði Jón að Guðmundur Ingi fari ekki að lögum í þeirri útfærslu sem hann boðar í friðlýsingum. Jón sagðist því ekki fá séð að þing­menn Sjálfstæðisflokks­ins gætu stutt stjórnarsamstarf sem færi fram með þess­um hætti.

Jón er gestur Lindu Blöndal í fréttaþættinum 21 á Hringbraut í kvöld. Þátturinn hefst klukkan 21:00.

Hann segist algjörlega hlynntur því að það fari fram friðlýsingar á grundvelli laga um rammaáætlun. „Ég sat sjálfur í nefndinni sem vann þessi lög á sínum tíma og skilaði þeim til þingsins og ég studdi þetta heilshugar. Það var reyndar mjög víðtæk samstaða í þinginu um þessa lagasetningu,“ segir Jón.

„En það var ekki hugsun þingsins að þessu yrði beitt með þeim hætti sem umhverfisráðherra kýs að gera,“ bætir hann við og tekur dæmi af Þjórsá, þar sem enga virkjun er að finna:

„Við höfðum ákveðið að hafa virkjanakostinn sem er neðstur við Þjórsá, Urriðafoss, sem er alveg niður undir sjó, í verndarflokki og friðlýsa hann. Þá er túlkun umhverfisráðherrans þannig að hann dregur friðlýsingarmörkin þannig að hann verndar allt vatnasvæði árinnar, frá jökli til ósa. Þar með væri ekki hægt að byggja neina virkjun í Þjórsá.“

Jón fullyrðir að þessi túlkun umhverfisráðherra sé ekki samkvæmt lögum. „Það er ekki bara mín skoðun. Orkustofnun, Landsvirkjun, sveitarfélögin sem hér heyra undir í þessum friðlýsingaráformum, Samorka og fleiri aðilar hafa allir fært fyrir því mjög sterk rök að það sé ekki verið að túlka lögin með réttum hætti.“ Orkumálastjóri hefur sömuleiðis gagnrýnt útfærslu umhverfisráðherra.

„Það getur hver og einn séð það að við myndum ekki fara að setja slíkt vald í hendur á einum manni, án þess að nokkur annar kæmi nálægt því að geta skilgreint svo víð friðlýsingarmörk sem raun ber vitni. Það var alls ekki meiningin,“ segir hann.

Umhverfisstofnun hefur ekki gert athugasemd við friðlýsingar umhverfisráðherra og þá hefur Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttur, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, sem fer með orkumál, ekki gert það heldur. Aðspurður fyrir hönd hverra hann tali þegar rætt er um að slíta stjórnarsamstarfi vegna þessa máls segir Jón:

„Þetta hefur átt sína umræðu, veit ég, við ríkisstjórnarborðið á milli ráðherra innan ríkisstjórnarinnar. Ég hef orðað þetta áður í samtölum en mér fannst rétt að gera grein fyrir því. Ég er ekkert einn innan þingflokks sjálfstæðismanna sem er þarna. Það er auðvitað ekki hægt að fara fram í þessum ágreiningi þar sem eru mjög sterk rök sem hníga að því að það sé ekki samkvæmt lögunum sem voru sett, og um það snýst þetta mál.“

Jón vill ekki nafngreina aðra þingmenn Sjálfstæðisflokksins sem líta málið jafn alvarlegum augum og hann og telja það grundvöll til að slíta stjórnarsamstarfi. Þeir tali máli sínu sjálfir og geti gert grein fyrir því kjósi þeir svo.

„Það er ekkert af tilviljun sem ég tek svo sterkt til orða. Ég geri mér alveg grein fyrir því hvað er hér undir. Það er auðvitað augljóst mál að sé ráðherra ekki að vinna samkvæmt lögum þá er það alltaf, í hverju tilfelli sem er, óásættanlegt.“