Jón minnist sigurbergs: „ætíð þakklátur fyrir þetta stutta samtal sem var í raun svo mikil hvatning“

Sig­ur­berg­ur Sig­steins­son íþrótta­kenn­ari fædd­ist á Land­spít­al­an­um í Reykja­vík 10. fe­brú­ar 1948. Hann lést á hjúkr­un­ar­heim­il­inu Ísa­fold í Garðabæ 29. janú­ar 2020. Sigurbergur var goðsögn, bæði í knattspyrnu og handbolta. Líkt og kom fram í umfjöllun Hringbrautar í gær var Sigurbergur elskaður og dáður og snerti marga djúpt á lífsleið sinni. Fjölmargir hafa tjáð sig um Sigurberg og áhrif hans. Einn af þeim er Jón Ólafsson tónlistarmaður og Þróttari en Jón spilaði í jarðarför Sigurbergs. Jón útskýrir á Facebook hvernig Sigurbergur hafði óvænt mikil áhrif á það að Jón ákvað að gefa út sína fyrstu sólóplötu. Jón segir:

„Hann kenndi mér leikfimi í þrjá vetur í Versló og var ákaflega almennilegur og góður maður. Það var stutt í brosið og húmorinn en samt var yfirvegunin allsráðandi. Ég upplifði hann alveg jafnmikið sem félaga og vin eins og kennara. Ég leit mikið upp til Sigurbergs enda var hann afreksmaður í boltaíþróttum; búinn að fara á EM, HM og Ólympíuleika og hvað eina.

\"\"Fljótlega komst ég að því hversu mikill tónlistarunnandi hann var og eftir að Versló lauk þá hitti ég hann ýmist á plötuútsölum eða tónleikum og það var alltaf hlýtt á milli okkar.

Eftir að hafa gert plötur með Nýdönsk, Possibillies og Bítlavinafélaginu blundaði í mér að gera sólóplötu en ég miklaði verkefnið fyrir mér og það varð aldrei neitt úr.

Ég var orðinn rúmlega fertugur þegar ég hitti Sigurberg á á endurfundi skólafélaga minna í Versló. Var þá nokkuð um liðið frá því við höfðum hist. Hann segir við mig:

„Af hverju gerir þú ekki sólóplötu?“.

Ég svaraði: „Hvernig plata ætti það eiginlega að vera?“.

„Nú þú spilar bara á píanó og syngur“.

Jón kveðst hafa eftir þetta séð ljósið og ákveðið að ráðast í gerð sinnar fyrstu sólóplötu.

„Þetta snerist bara um að vera samkvæmur sjálfum sér; vera maður sjálfur og ekki ætla sér um of. Sigurbergi fannst þetta borðleggjandi og ég er honum ætíð þakklátur fyrir þetta stutta samtal sem var í raun svo mikil hvatning.“

Jón heldur áfram:

„Fyrir fimm árum greindist hann með Alzheimer en það aftraði honum ekki frá því að mæta á útgáfutónleika mína í Salnum árið 2017. Vissulega var dregið af honum en mikið þótti mér vænt um að sjá hann þetta kvöld.“

Þá segir Jón að lokum:

„Sigurbergur verður mér ætíð eftirminnilegur og ég er þakklátur fyrir að hafa kynnst þessum góða manni.

Guðrúnu og börnunum sendi ég mínar dýpstu samúðarkveðjur.“