Jón Karl Ólafsson, sem hefur meðal annars starfað sem forstjóri Icelandair, hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri innanlandsflugvallasviðs hjá Isavia sem rekur alla flugvelli landsins í ríksieigu .
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Isavia en þar segir að í starfinu felst yfirumsjón með rekstri og þróun innanlandsflugvallakerfisins á Íslandi sem samanstendur af 12 áætlunarflugvöllum og á fjórða tug annarra flugvalla og lendingarstaða.
Jón Karl hefur víðtæka reynslu af flugmálum, ferðaþjónustu og stjórnun fyrirtækja. Hann hefur unnið á sviði viðskipta, sölu- og markaðsmála auk þess sem hann hefur gegnt starfi forstjóra bæði hjá Icelandair og Primera Air. Jón Karl hefur störf hjá Isavia hinn 1. október næstkomandi.
„Innanlandsflugvellir eru gríðarlega mikilvægir innviðir fyrir ferðaþjónustuna og nauðsynlegt almannasamgöngukerfi sem tengir landið saman. Ég þekki það af mínum fyrri störfum bæði í flugi og ferðaþjónustu að í innanlandsflugvallakerfinu liggja mikil tækifæri sem við getum nýtt enn betur. Það er því sannarlega spennandi og ögrandi starf framundan,“ segir Jón Karl í tilkynningu frá Isavia.