Jón jónsson gaf túristum leiðbeiningar með bros á vör: „gríman fellur aldrei hjá landsins mesta næs gæja“

Una Sighvatsdóttir, fyrrum blaðamaður og starfsmaður NATO, greindi frá skemmtilegum atburð á Twitter síðu sinni í gær en hún sá söngvarann Jón Jónsson við Reykjavíkurtjörn að gefa erlendum ferðamanni leiðbeiningar.

„Bograði yfir kortið með honum í góða stund, benti honum með bros á vör og kvaddi með kumpánalegu klappi á herðarnar. Gríman fellur aldrei hjá landsins mesta næs gæja,“ skrifar Una í færslunni en söngvarinn er þekktur fyrir að vera einstaklega viðkunnanlegur.

Í svari við færsluna bætir ein við að það kæmi henni ekkert á óvart ef forsetinn sjálfur Guðni Th. Jóhannesson myndi gera eitthvað svipað og segist Una vera sammála því. „Okkar bestu menn!“

\"\"