Jón hótar stjórnarslitum

„Ég get ekki séð að við þing­menn Sjálf­stæðis­flokks­ins get­um stutt stjórnar­sam­starf sem fer fram með þess­um hætti. Það er best að gera grein fyr­ir því strax.“

Þetta seg­ir Jón Gunn­ars­son, þingmaður Sjálf­stæðis­flokks­ins, í aðsendri grein í Morg­un­blaðinu í dag. Ástæðuna segir hann vera verklag Guðmundar Inga Guðbrandssonar, umhverfis- og auðlindaráðherra þegar kemur að friðlýsingum.

Jón segir að Guðmundur Ingi hafi ekki getað lagt fram nýja rammaáætlun vegna þess að hann eigi rætur sínar í þeim hópi fólks sem telur að ekki eigi að virkja meira á Íslandi. „Þess sé ekki þörf. Lög um rammaáætlun gera ekki ráð fyrir stöðnun og auðvitað er það svo að umræða um þriðja orkupakkann eða önnur umræða um orkuauðlindina væri óþörf ef slíkri stefnu væri framfylgt. Ég fullyrði að það var ekki skilningur þingmanna þegar málið var á sínum tíma afgreitt í víðtækri sátt á Alþingi. Umhverfisráðherra er upptekinn af því þessa dagana að efna til friðlýsingar á grundvelli þessara laga.“

„Aðferðafræði hans stenst að mínu mati enga skoðun og hafa marg­ir hags­munaaðilar full­yrt að ekki sé farið að lög­um í þeirri út­færslu sem hann boðar. Ég er sam­mála því að verklag hans sam­ræm­ist ekki lög­um,“ bætir hann við. 

Jón tekur dæmi af því hvernig aðferðafræði Guðmundar Inga komi til með að virka. „Skýrt dæmi um hvernig aðferðafræði ráðherr­ans mun virka í raun er t.d. að ef eng­in virkj­un væri í dag til staðar í Þjórsá og Alþingi hefði ákveðið að setja virkj­un­ar­kost­inn Urriðafoss í vernd­ar­flokk myndi ráðherr­ann friða allt vatna­svæði Þjórsár frá jökli til ósa þannig að eng­in virkj­un yrði reist við Þjórsá. Þetta er gal­in leið og geng­ur ekki upp. Ég get ekki séð að við þing­menn Sjálfstæðisflokks­ins get­um stutt stjórnar­sam­starf sem fer fram með þess­um hætti. Það er best að gera grein fyr­ir því strax.“