Jón Helgi Guðmundsson, forstjóri og helsti eigandi Norvik-samstæðunnar seldi verslunarveldi sitt á Íslandi á síðasta ári með tæplega átta milljarða króna hagnaði.
Að því er fram kemur í DV í dag, sem fjallar um söluna, er kaupandinn Framtakssjóður í rekstri sjóðsstýringarfyrirtækisins Stefnis, en hópur lífeyrissjóða og ýmissa fag- og einkafjárfesta á nú einnig stóran hluta af innlendum eignum Norvik, bæði fyrirtæki og fasteignir, en þar á meðal er Kaupás, sem rekur matvöruverslanir undir merkjum Krónunnar og Nóatúns.
Fram kemur í DV í dag að í ársreikningi Norvik, sem var skilað til ársreikningaskrár fyrir skemmstu er greint frá því að dótturfélögin fimm, Kaupás, Elko, Intersport, Auglýsingastofan Expo og Bakkinn vöruhótel – hafi verið seld fyrir 11,58 milljarða króna undir lok febrúarmánaðar á síðasta ári. Það sé umtalsvert hærri fjárhæð en hafi numið bókfærðu virði félaganna í árslok 2013 og nemi því hagnaður Norvik af sölunni samtals 7,96 milljörðum króna. Fjárfestahópurinn hafi jafnframt keypt hluta af fasteignasafni Smáragarðs, dótturfélags Norvikur.
Hagnaður af sölu innlendra eigna Norvikur skýrir góða afkomu félagsins á liðnu ári en hagnaður þess nam 8,2 milljörðum króna eftir skatta, segir í frétt blaðisns. Fram komi í skýrslu stjórnar að salan hafi styrkt fjárhagsstöðu félagsins og aukið eigið fé þess verulega. Eignir Norvikur hafi numið 15,3 milljörðum króna undir árslok 2014 – og minnkað um ríflega 8 milljarða á milli ára. Eiginfjárstaða félagsins sé því gríðarlega sterk þar sem eiginfjárhlutfall þess er liðlega 93% borið saman við aðeins 26% árið áður.
Samhliða sölu Norvik-samstæðunnar á innlendum dótturfélögum sínum greiddi félagið að mestu upp allar vaxtaberandi skuldir sínar á árinu 2014 – og í kjölfarið eru skuldir félagsins í dag nánast engar. Í árslok 2014 námu skuldir Norvikur aðeins um 1,1 milljarði króna, að langstærstum hluta við tengda aðila, borið saman við ríflega 17 milljarða króna árið áður. Fyrir utan Byko-verslunina, sem fylgdi ekki með í kaupum á innlendri starfsemi Norvik á síðasta ári, þá á Norvik fyrirtæki sem starfa í timburiðnaði í Lettlandi, Svíþjóð, Bretlandi og Eistlandi, svo sem segir í DV í dag.