Jón Gunnarsson: „Við megum ekki gleyma uppruna okkar, það engum hollt"

Jón Gunnarsson alþingismaður og ritari Sjálfstæðisflokksins furðar sig á því hvers vegna minningarathöfn til heiðurs sjómanna hafi verið frestað í ár.

Samkvæmt hefð er haldin minningarathöfn, við minningaröldurnar í Fossvogskirkjugarði, um sjómenn sem farist hafa á sjó.

„Ég hef á undanförnum árum verið við þessa látlausu og fallegu athöfn. Ég skil reyndar ekki hvers vegna henni var frestað nú því þarna hafa verið saman komin nokkrir tugir manna, kannski 70-80 manns og áhafnir varðskipa okkar hafa staðið heiðursvörð meðin lesin eru minningarorð."

Honum þykir þessi ákvörðun sérstaklega athyglisverð vegna mótmæla sem leyfð voru við Austurvöll í vikunni:

„Á sama tíma var ekkert mál að leyfa mótmælastöðu við Austurvöll þar sem, samkvæmt lögreglu, voru saman komin hátt í 3,000 manns. Nú hef ég ekkert við mótmælastöðuna að athuga og örugglega fullt tilefni til að taka þátt í vandlætingu gagnvart því ofbeldi sem þar var mótmælt."

Hann endar færsluna á að minna þjóðina á að gleyma ekki hvaðan við komum.

„Við megum ekki gleyma uppruna okkar, það engum hollt"

Minningarathöfn um sjómenn sem farist hafa á sjó fer venjulega fram á Sjómannadaginn við minningaröldurnar í Fossvogskirkjugarði.
Jón Gunnarsson.