Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, og Kristín Vala Ragnarsdóttir, doktor í jarðhitafræðum og prófessor við Háskóla Íslands, munu takast á um stóriðjustefnu Íslendinga, rask tengt virkjanaframkvæmdum, efnahagsstefnu og umhverfisvernd í fréttaskýringarþættinum Kvikan sem sýndur verður á sjónvarpsstöðinni Hringbraut klukkan 21.30 í kvöld.
Einnig verður í þættinum farið til Húsavíkur og rætt við heimamenn um fyrirhugað kísilver PCC. Þar var nýverið klippt á borða til að fagna upphafi framkvæmda. Hugur heimamanna er eilítið blendinn á þessum tímamótum, enda líður sumum eins og tímabært sé að kveðja hina gömlu Húsavík eins og fram mun koma í þætti kvöldsins.
Kvikan er í umsjá Björns Þorlákssonar og fer í loftið annan hvern fimmtudag. Hringbraut er frí sjónvarpsstöð en þeim sem ekki horfa á sjónvarp má benda á að alla þætti sjónvarpsstöðvarinnar má einnig nálgast í fullri lengd á hringbraut.is.