Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sætti harðri gagnrýni í Silfrinu í dag vegna ummæla hans um friðlýsingar umhverfisráðherra, Guðmundar Inga Guðbrandssonar. Jón sagði nýverið að hann efaðist um að þingmenn flokksins gætu stutt stjórnarsamtarf þar sem umhverfisráðherra færi fram á slíkan hátt.
Þetta er brot úr frétt Fréttablaðsins. Hér má lesa fréttina í heild sinni.
„Það er alltaf best að tala hreint út,“ sagði Jón um málið í Silfrinu en ýjað var að því að alvarlegt væri að hóta stjórnarslitum með álíka hætti. „Ég vil nú ekki meina að ég hafi verið að kasta bombu í þetta stjórnarsamstarf heldur miklu frekar umhverfisráðherra.“ Umhverfisráðherra færi ekki að lögum með verklagi sínu og virtist að mati Jóns vilja friðlýsa landið eins og það leggur sig.
Helga benti á að yfirlýsing Jóns virtist ekki hafa hlotið mikinn meðbyr og taldi hún það bera þess merkis að fáir væru á hans skoðun. „Það var áhugavert að sjá forystu ríkisstjórnarinnar blása á þessa gagnrýni.“ Sjálfur sagðist Jón tala fyrir hönd fleiri þingmanna Sjálfstæðisflokksins sem hann vildi ekki nefna á nafn.
Þetta er brot úr frétt Fréttablaðsins. Hér má lesa fréttina í heild sinni.