Jón gunnar skipaður forstjóri samgöngustofu – þórólfur ósáttur

Jón Gunnar Jónsson var í dag skipaður forstjóri Samgöngustofu frá og með 6. ágúst næstkomandi. Hann hefur starfað sem stjórnandi síðastliðin 30 ár, síðast sem framkvæmdastjóri Actavis á Íslandi. Þórólfur Árnason, sem hefur verið forstjóri Samgöngustofu undanfarin fimm ár, segir ákvörðunina koma sér verulega á óvart.

Í tilkynningu frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu kemur fram að umsækjendur hafi verið alls 23 og að hæfnisnefnd hafi tilgreint fimm umsækjendur sem nefndin taldi hæfasta til að gegna starfinu. Bæði nefndin og Sigurður Ingi Jóhannsson samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra mátu svo Jón Gunnar hæfastan til þess að gegna starfinu.

Þórólfur var á meðal þeirra fimm umsækjenda sem voru taldir hæfastir. Í samtali við RÚV í dag segir hann að miðað við reynslu sína og fyrri störf komi niðurstaða hæfnisnefndarinnar sér verulega á óvart. Starf Samgöngustofu hafi verið farsælt undanfarið og máli sínu til stuðnings bendir Þórólfur á niðurstöðu vinnustaðagreiningar, fjárhagslega afkomu stofnunarinnar og að Ríkisendurskoðun hafi ekki skilað neinum athugasemdum í úttekt sinni. 

Þórólfur segir að starfsfólk Samgöngustofu hafi verið slegið þegar hann hafi tilkynnt því að Jón Gunnar hefði verið skipaður nýr forstjóri stofnunarinnar. Greindi hann frá tíðindunum fyrr í dag, áður en tilkynning ráðuneytisins um skipunina var birt opinberlega.