Jón Gnarr leikari og fyrrverandi borgarstjóri veltir nú fyrir sér að stofna nýjan stjórnmálaflokk. Líkt og margir vita stofnaði Jón Gnarr Besta flokkinn sem bauð fram í Reykjavík í sveitastjórnarkosningnum árið 2010. Jón Gnarr skipaði 1. Sæti listans og svo fór að flokkurinn hafði sigur og Jón varð borgarstjóri eins og frægt er.
Flokkurinn starfaði fram að næstu sveitastjórnarkosningum og gekk þá til liðs við Bjarta framtíð. Besti flokkurinn var með mörg einkennileg mál á sinni könnu, lofaði t.d. ísbirni í Húsdýragarðinn og ókeypis handklæðum í allar sundlaugar.
Nú þegar tvö ár eru í kosningar lýsir Jón því yfir að hann hafi hug á að stofna umhverfisverndarflokk með einungis ömurlega hluti á stefnuskrá sinni. Jón Gnarr segir:
„Væri gaman að stofna umhverfisverndarflokk, sem lýsir yfir neyðarástandi og hefur bara ömurlega hluti á stefnuskrá sinni; banna krússkip, leggja niður innanlandsflug, fækka rollum og beljum og banna jarðefnaeldsneyti og allskonar.“
Þá spyr Jón: „Ætli einhver myndi kjósa það?“
Jón Gnarr varpar fram spurningu um áhuga fyrir slíkum flokki, bæði á ensku og íslensku á Twitter, og hefur fengið mikil viðbrögð. Halldór Halldórsson betur þekktur sem Dóri DNA segir:
„Þú fengir mikið fylgi. Fólk er hvort eð er stöðugt ad outsource-a siðferði sínu. Myndi þykja það þægilegt að kjósa Þetta?“
Jón Gnarr segir að fyrstu verk flokksins yrðu:
„Við myndum byrja á að banna rútur og flutningabíla en síðan alla bensín og dísilbíla, fyrst í þéttbýli en svo um allt land.“
Þá er vert að hafa í huga, telji fólk að Jón Gnarr sé að slá á létta strengi, að þannig byrjaði Besti flokkurinn, enginn hafði trú á því lengi vel að Jóni Gnarr væri alvara. Og þá er það spurningin, myndir þú kjósa slíkan flokk?