Jón Gnarr kominn með hugmynd að nýjum Vaktarþáttum: „Kæri Jón, láttu þetta verða að veruleika“

Jón Gnarr, fyrrverandi borgarstjóri Reykjavíkur og sjónvarpsstjarna, segir að fréttir síðustu daga hafi gefið honum helling af hugmyndum fyrir nýja Vaktarþætti. Jón Gnarr átti mikinn leiksigur í þáttunum Næturvaktin, Dagvaktin og Fangavaktin á árunum 2007 til 2009. Þættirnir eru fyrir löngu síðan orðnir klassískir, lauk sögunni um Georg, Ólaf og Daníel með kvikmyndinni Bjarnfreðarson sem kom út árið 2010.

Jón segir á Twitter: „Kominn með fullt af góðum hugmyndum fyrir Kosningavaktina, þar sem Georg Bjarnfreðarson "leiðréttir" kjörseðla, reynir að kjafta sig útúr því, þegar upp kemst, en nær að klína því á Ólaf, sem að lokum biður þjóðina afsökunar.“

Vísar hann þar í klúðrið í kringum talningu atkvæða í Norðvesturkjördæmi.

Margir hafa tekið undir þessa hugmynd Jóns, þar á meðal Ásta Guðrún Helgadóttir, fyrrverandi þingmaður Pírata:

„Gæti verið fyrsti þátturinn af "Alþingisvaktinni" - sem fjallar um allt nema alþingismenn,“ segir hún. „Aðrir þættir gætu snúist um að fylla á vatnið fyrir framan þingsalinn og að búa til bréf til þingmanna að jólasíldin sé komin. Og að þrífa saununa sem enginn notar. Ég er með helling af efni.“

Helga Vala Helgadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, hlakkar til. „Jáhh nú bara verðum við að fá Georg og þingvaktina takk!“

Pétur nokkur biður Jón fallega að láta þetta verða að veruleika: „Kæri Jón, láttu þetta verða að veruleika. Við eigum það öll skilið í líf okkar, smá gleði og húmor.“