Jón gnarr hjólar í „krakkana“ á dv og segir þá sitja um sig: sigurjón neitar að biðjast afsökunar – „þú getur verið orðljótur“

Jón Gnarr og Sigurjón Kjartansson sem stýra þættinum Tvíhöfða á Rás 2, fjölluðu í gær um fréttafluttning DV frá í vikunni. DV birti frétt sem unnin var upp úr frétt Hringbrautar sem vitnaði í þátt Tvíhöfða frá helginni áður. Þar uppnefndi Sigurjón Kjartansson Sigmund Davíð Gunnlaugsson krakkaskít úr Garðabæ sem hann hefði lagt í einelti, hefði tækifærið gefist. Þá sögðu þeir að kjósendur Miðflokksins væru ómenntaðir banjospilarar, oftast eldra fólk, einng væru margir kjósendur tannlausir og tyggja skro og ættu heima á Suðurlandi. Þeir væru á móti innflytjendum en tryðu á Jesú Krist.

DV tók upp frétt Hringbrautar og í fyrirsögn sagði að bæði Jón Gnarr og Sigurjón hefðu uppnefnt Sigmund Davíð. Jón Gnarr tjáði sig um fyrirsögnina á Twitter og sagði DV um að ljúga uppá sig. Hann hefði aldrei sagt að Sigmundur Davíð væri krakkaskítur sem ætti að leggja í einelti. Fyrirsögn DV var síðan breytt í eftirfarandi:

„Tvíhöfði segir Sigmund vera krakkaskít úr Garðabæ.“

Þá sagði Jón Gnarr einnig á Twitter: „Þau hafa mest verið í að snúa útúr en þetta er alveg nýtt hvað mig varðar. Kann illa við að vera borinn svona áburði.“

\"\"

Jón Gnarr og Sigurjón ræddu í þætti gærdagsins um þá fjölmiðlaumfjöllun sem átt sér stað í kjölfar umræðu þeirra um Sigmnund Davíð.

„Það bara sprakk í andlitið á okkur,“ sagði Sigjón Kjartansson og bætti við: „Það sprakk nú aldeilis í andlitið á okkur.“

Jón Gnarr svaraði: „Sko, þú getur verið orðljótur. Þú sagðir: „Sigmundur Davíð er krakkaskítur úr Garðabæ.“ Ég sagði Nei. Hann er nú eldklár en DV situr um mig.“

Þá lagði Jón Gnarr áherslu á að hann hefði ekki uppnefnt Sigmund Davíð. Sigurjón ætti alfarið sök á því.

Þá sagði Sigurjón: „Þessir strákar þarna á DV.“

„Þetta eru ekkert strákar. Þetta eru krakkar,“ svaraði Jón.

„Það er auðvitað dæmigert fyrir hvíta miðaldramenn að dæma blaðamenn sem krakka,“ sagði Sigurjón þá og Jón Gnarr bætti við:

„Ég er líka að segja, það eru líka stelpur að vinna þarna. Þannig að segja að þau séu strákar, skilurðu, [þau eru] meira krakkar.“

Þá sagði Sigurjón: „Eina sem ég vil segja um þetta mál, ég aldrei lagt neinn í einelti nema ef vera skyldi, litla bróður minn. Hann er fæddur 1975 og ég kallaði hann alltaf krakkaskít, sem hann var. Þess vegna setti ég þetta í samhengi. Þegar ég komst að því að Sigmundur Davíð væri fæddur 1975.“

Þá skaut þriðja hjólið inn í, Þórður Helgi Þórðarson: „Er Sigurjón að biðjast afsökunar í Ríkisútvarpinu?“

Sigurjón svaraði að það kæmi ekki til greina að biðja Sigmund Davíð afsökunar en vildi þess í stað :

„Nei, ha, á þessu? Never!“ svaraði Sigurjón og bætti síðan við:

„Ég vil nota tækifærið og biðja Sindra bróður minn afsökunar á að hafa verið svona leiðinlegur við hann. Ég hef ekki beðið hann afsökunar face to face.“

Hér má hlusta á Tvíhöfða og umræðurnar um Sigmund og DV.