Jón Gnarr gælir við bæjarstjórastólinn á Akureyri - „Sjá hvernig landið liggur“

Jón Gnarr segist vera að pæla í því að bjóða sig fram í bæjarstjórnarkosningum á Akureyri og hefur lýst yfir áhuga sínum á bæjarstjórastólnum. Hann er búsettur í bænum um þessar mundir vegna uppfærslu leikfélagsins á Skugga-Sveini, en þar fer hann með aðalhlutverkið. Svo virðist vera sem hann sé yfir sig hrifinn af bænum, og er hann meira að segja farinn að tala um sjálfan sig sem Akureyring.

Líkt og flestir vita fara sveitarstjórnakosningar fram í vor, og hver veit, kannski verður Jón í framboði.

Jón greindi frá þessari hugmynd sinni í útvarpsþættinum Tvíhöfða, en það var einmitt í þeim þætti árið 2009 þar sem hann fjallaði fyrst um Besta Flokkinn, og ári síðar sigraði hann borgarstjórnarkosningarnar og varð í kjölfarið borgarstjóri Reykjavíkur, þar sem hann sat í eitt kjörtímabil.

Ekki er víst hvort þessi hugmynd Jóns hafi verið varpað fram í fullri alvöru, en líkt og alþjóð veit er gjarnan stutt á milli gríns og alvöru hjá honum. Hann sagði til að mynda meðstjórnanda þáttarins Sigurjóni Kjartanssyni að hugmyndin væri leyndarmál, og í raun bara á milli þeirra tveggja, en hefur þó auðvitað verið fullmeðvitaður um að hann væri að tala í útvarp allra landsmanna. „Æji eins og ég segi. Ég er bara að kasta þessu út í kosmósinn, bara að sjá hvernig landið liggur,“ sagði Jón.

Í þættinum talaði Jón um hvernig kosningabaráttan myndi ganga fyrir sig. Hann myndi fá sér skíði og hanga uppi í Hlíðarfjalli, borða á Bautanum í hverju hádegi, og heimsækja fólk og sýna þeim nýjasta Iphone-símann. Þá kom hann inn á nokkur kosningamál, þar minntist hann á að breyta Akureyri í borg, og hann myndi vilja koma á fót sérstökum ísbjarnardýragarði, auk þess sem hann myndi vilja fá Costco til Akureyrar.