Jón gnarr fer ekki fram til forseta

Jón Gnarr, yfirmaður 365 nýtti sér Ísland í dag á eigin vinnustað til að tilkynna ekki forsetaframboð sitt í kvöld.

Hann dró áhorfendur lengi á að tilkynna ákvörðun sína en fyrr um daginn hafði Jón auglýst að hann myndi skýra frá ákvörðun sinni á Stöð 2. Eftir spjall við Sigurjón Kjartansson fóstbróður og Tvíhöfða þar sem Jón spurði Sigurjón hvort hann hygðist bjóða sig fram en Sigurjón neitaði var gert auglýsingahlé. Má leiða að því líkum að minna áhorf hafi orðið á sjónvarpsfréttir Rúv á sama tíma.

Að því loknu bauð Jón Gnarr fréttakonu 365, Viktoríu Hermannsdóttur, í spjall með Sigurjóni og ræddi m.a. við hana harmdauða David Bowie og innlendar fréttir meðan áhorfendur biðu frétta af forsetaframboði.

Svo birti hann mynd úr barnaskaupi Rúv af Bjarna Ben og Sigmundi Davíð og taldi hana mynd vikunnar, en um ræðir atriðið sem Rúv hefur beðist afsökunar á vegna þrýstings.

Svo bað hann gesti að spyrja sig um eigið framboð og svaraði. \"Ég sko er gríðarlega mikið upp með mér og snortinn, alltaf verið að hringja í mig en nei, ekki að svo stöddu,\" sagði Jón þá en sagðist þó ekki útiloka það síðar.