Jón gnarr birti sláandi mynd: hvað útskýrir þennan 400% verðmun? - sjáðu myndina

Jón Gnarr leikari og fyrrverandi borgarstjóri birti mynd af tveimur vörum á Facebook-síðu sinni. Um er að ræð mynd af sömu vörunni, frá sitthvorum framleiðandanum en verðmunurinn er sláandi svo ekki séð kveðið fastara að orði.

Jón Gnarr segir: „Ég elska súrkál og ét það með öllu. Pólska súrkálið í Nettó finnst mér langbest og á besta verðinu líka. Einsog maður myndi nú vilja velja íslenskt þá er það bara stundum sturlun.“

Þess má geta að báðar vörurnar eru lífrænt ræktaðar.  Ellert Vopni Olgeirsson bendir á: „Pólska súrkálið á 469 kr kg á meðan íslenska er á 4081 kr kg.“ Þá segir tónlistarmaðurinn Svavar Knútur: „Hvað útskýrir 400% verðmun?“

\"\"