Jón Gunnarsson, nýr samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra kallar eftir sátt allra hlutaðeigandi aðila ef sú leið verður valin að taka upp vegtolla á helstu akstursleiðunum í kringum höfuðborgarsvæðið.
Þetta kemur fram í samtali ráðherrans við Sigmund Erni í þættinum Ferðalagið á Hringbraut sem frumsýndur var í gærkvöld, en þar lagði ráðherrann áherslu á að hann myndi aldrei fara fram með ófriði á hendur íbúum nágrannasveitarfélaga höfuðborgarsvæðsins; hér væri um samvinnuverkefni að ræða sem sátt þyrfti að nást um, ella væri betur heima setið. Hann kvaðst í þælttinum vilja skoða kosti og galla gjaldtökuleiðarinnar í þaula áður en lengra væri haldið - og hefur raunar þegar stofnað starfshóp í því augnamiði - en augljóst væri að taka yrði sérstakt tillit til þess fólks sem sakir starfs eða náms þyrfti að ferðast daglega um þessar helstu þjóðleiðir sem lægju frá Vesturlandi, Suðurlandi og Suðurnesjum til höfuðborgar landsins.
Hann minnti á að vegabætur á þessum fjölförnustu slóðum íslensks vegakerfis kæmi þeim helst og mest til góða sem þar færu oftast; í meira öryggi og auknum sparnaði, jafnt í tíma og fjármunum - og almennt væri hann þeirrar skoðunar að sanngjarnara væri að leggja beinar álögur á þá sem notuðu þjónustuna fremur en að allur almenningur væri skattlagður fyrir kostnaðinn sem af henni hlytist.
Ferðalagið er frumsýnt öll miðvikudagskvöld klukkan 20:00 á Hringbraut.