Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi sendiherra og utanríkisráðherra, hefur stefnt Aldísi Schram dóttur sinni fyrir meiðyrði. Einnig hefur hann stefnt Ríkisútvarpinu og Sigmari Guðmundssyni, sem starfar sem fréttamaður þar. Þetta kemur fram í Stundinni.
Í stefnunum til Aldísar, Sigmars og RÚV eru talinn upp yfir tuttugu ummæli sem hún lét falla í þættinum ásamt fjórum ummælum Sigmars. Var Aldís í viðtali hjá Sigmari og Helga Seljan í Morgunútvarpi Rásar 2 þann 17 janúar síðastliðin.
Í viðtalinu á RÚV sagði Aldís að Jón Baldvin hefði misnotað stöðu sína sem sendiherra í Bandaríkjunum í persónulegum tilgangi. Sagði hún að hann hafi nýtt sér stöðu sína til að fá lögreglu og lækni til að brjóta sér leið inn á heimili sitt, án þess að nokkuð benti til þess að þörf væri á slíku inngripi. Jón Baldvin sendi fjórum sinnum beiðnir um nauðungarvistun með faxi frá sendiráðinu í Washington. Í einu tilfellanna var faxið merkt sem „aðstoð við erlend sendiráð“.