Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi formaður Alþýðuflokksins og utanríkisráðherra í Viðeyjarstjórn Davíðs Oddssonar á tíunda áratug síðustu aldar var gestur Sigmundar Ernis í Mannamáli í gærkvöld.
Óhætt er að segja að þar fari einn kunnasti vígamaður íslenskra stjórrnmála á síðustu áratugum, marghamur og vaskur til verka, en jafn umtalaður fyrr og síðar og hann hefur verið umdeildur.
Í þættinum, sem nú er hægt að nálgast á hringbraut.is talar Jón Baldvin af hispursleysi um samband sitt og föður síns, Hannibals Valdimarssonar sem var á köflum stormasamt, tilhugalífið með Bryndísi sinni Schram og hversu vel heildsalinn í Vesturbænum tók á móti þessum verðandi tengdasyni sínum, sósíalistanum sjálfum - og þá er áheyrilegt að hlýða á kappann segja frá líminu í ást þeirra hjóna sem ennþá dugar vel, svo og sigrunum í lífi þeirra og sárasta missinum.
Jón Baldvin rekur svo stjórnmálasögu sína, formannssigurinn á Kjartani Jóhannssyni, slitin á ríkisstjórn Þorsteins Pálssonar í beinni útsendingu á Stöð þar sem hann mætti óboðinn, samstarfið við Davíð Oddsson í Viðeyjarstjórninni, myndun hennar og endalok, en Jón Baldvin segir að samband þeirra Davíðs í dag sé ekki neitt.
Þá er góðum tíma varið í þá miklu pólitísku áhættu sem Jón Baldvin tók þegar hann viðurkenndi sjálfstæði Eystrasaltsríkjanna fyrir hönd Íslands, en sérstaka athygli vekur hvaða einkunn Jón Baldvin gefur þungaavigtarleiðtogum Evrópu og vestanhafs á þeim tíma en þeir drógu margir hverjir lappirnar og þorðu ekki að taka af skarið af ótta við viðbrögð Rússa.
Jón Baldvin er á heimavelli í viðtalinu, freskur og hress, opinskár og orðhvass á köflum, en þáttinn má sem fyrr segir nálgast í heild sinni á hringbraut.is, auk þess sem hann verður endursýndur á Hringbraut í dag.