Jón baldvin laskaðist á viðtalinu

Jón Baldvin Hannibalsson laskaðist á viðtalinu í Silfrinu á sunnudag - og taktíkin gekk ekki upp; gamli herskái pólitíkusinn birtist þar í staðinn fyrir auðmjúka og bljúga herramanninn sem átti líklega betur við á þessari ögurstundu í lífi hans.

Þetta er mat þeirra Jóns Sigurðssonar, fyrrverandi ritstjóra Tímans og Svavars Gestssonar, fyrrverandi ritstjóra Þjóðviljans, en þessir gömlu og reynsluríku ráðherrar ræddu Jóns-málið í Ritstjórunum á Hringbraut í gærkvöld - og segja þar málið vera hreint alveg hræðilegt fyrir fjölskylduna alla. Þátturinn er endursýndur í dag og einnig sjáanlegur á hringbraut.is undir flipanum sjónvarp / 21.

Staðan á ríkisstjórnarheimilinu er einnig til umræðu, meðal annars skattamálin og stjórnarskrármálið sem reynir á ríkisstjórina um þessar mundir - og svo er vinstristjórninni sem sett var á laggirnar fyrir réttum áratug gefin einkunn.

Ritstjórarnir eru nú hluti fréttaþáttarins 21 sem sýndur er alla virka daga á Hringbraut.