Jón Baldvin Hannibalsson mætti fyrir dóm í morgun vegna máls héraðssaksóknara gegn sér í vegna meints kynferðisbrots gegn Carmen Jóhannsdóttur á Spáni fyrir þremur árum.
Sex manns fluttu skýrslu fyrir dómi í dag, þrjú í gegnum fjarfundarbúnað og þrjú í vitnastúkunni í dómsal 401 í Héraðsdómi Reykjavíkur. Aðalmeðferð fór fram frá klukkan 9:15 og stóð til 13:30 með aðeins einni fimm mínútna pásu.
Eftir vitnaleiðslur og ræðu Drafnar Kærnested sækjanda, Vilhjálms H. Vilhjálmssonar verjanda og Ólafar Heiðu Guðmundsdóttur réttargæslumanns, spurði dómarinn hvort Jón Baldvin vildi bæta einhverju við.
Svarði þá Jón Baldvin: „Nei, ég er að sofna.“
Fréttablaðið fjallaði náið um málið í dag og er hægt að lesa sér til um öll rétthöldin hér fyrir neðan:
Jón Baldvin telur að atvikið hafi verið sett á svið
Laufey segist hafa gengið á Jón Baldvin inni í svefnherbergi
Carmen segir Jón Baldvin hafa æpt að hann myndi lögsækja ef hún segði frá
Vilja þriggja mánaða dóm yfir Jóni Baldvin