Jón atli ráðinn

Jón Atli Benediktsson, prófessor í rafmagns- og tölvuverkfræði og núverandi rektor Háskóla Íslands, mun gegna embættinu áfram til næstu fimm ára. Að fenginni tillögu háskólaráðs skólans afhenti Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra honum skipunarbréf þessa efnis á dögunum. Þetta kemur fram á vef Háskóla Íslands.

Embætti rektors var auglýst laust til umsóknar í desember og umsóknarfrestur rann út 3. janúar síðastliðinn. Jón Atli var eini umsækjandinn um embættið og samþykkti háskólaráð á fundi sínum 9. janúar sl. að tilnefna hann í embætti rektors Háskóla Íslands til næstu fimm ára frá 1. júlí 2020.

Jón Atli var kjörinn rektor Háskóla Íslands vorið 2015 og tók formlega við embætti þann 1. júlí það ár. Hann er 29. rektorinn sem gegnir embættinu frá því að Háskólinn var stofnaður árið 1911.

Samkvæmt lögum um opinbera háskóla er rektor formaður háskólaráðs, yfirmaður stjórnsýslu háskólans og æðsti fulltrúi hans gagnvart mönnum og stofnunum innan skólans og utan.

Hann hefur frumkvæði að því að háskólaráð marki heildarstefnu í málefnum háskólans. Rektor ber einnig ábyrgð á og hefur eftirlit með allri starfsemi skólans og á milli funda háskólaráðs fer hann með ákvörðunarvald í öllum málum háskólans.