„Ég varaði hann við áður en hann fór niður í Seðlabanka,“ segir Jón Ásgeir Jóhannesson en hann er gestur Sigmundar Ernis í þættinum Mannamál sem sýndur er hér á Hringbraut klukkan 20:00 kvöld. Jón Ásgeir hefur verið undir radarnum síðustu ár líkt og hann orðar það sjálfur í viðtalinu og veitir sjaldan stór viðtöl. Í þættinum fer Jón Ásgeir ítarlega í saumana á Baugsmálinu, átökin við Davíð og Sjálfstæðisflokkinn, fall Glitnis og hvaða áhrif allt þetta hafði á fjölskylduna.
Það var miðvikudaginn 24. september 2008 sem Þorsteinn Már Baldvinsson, þáverandi stjórnarformaður Glitnis banka, hafði samband við Davíð Oddsson seðlabankastjóra. Til stóð að ræða og reyna að leysa lausafjárvanda Glitnis. Framundan voru stórir gjalddagar á erlendum lánum og útlitið var svart. Þorsteinn taldi að Glitnir ætti góð veð sem hægt væri að lána út á. Á fundinum með Davíð gerði Þorteinn seðlabankastjóra grein fyrir stöðunni og óskaði jafnframt eftir að Seðlabankinn myndi lána Glitni fjármuni. Því var synjað og hefur Þorsteinn gagnrýnt hvernig staðið var að málum gagnvart Glitni.
Jón Ásgeir telur að það hafi hlakkað í Davíð þegar hann neitaði Glitni um lán á þessum örlagaríku tímum.
„Ég vil halda því fram að þetta hafi verið feigðarför sem Þorsteinn Már fór í. Ég varaði hann við áður en hann fór niður í Seðlabanka, hann yrði að gera sér í hugarlund hvaða ástand var þar á bæ. Menn myndu vilja knésetja Glitni og ef þeir myndu fá tækifæri til þess, þá yrði það gert. Og það gekk eftir.“
Jón Ásgeir heldur áfram:
„Það lá ekkert á, það voru tvær vikur til stefnu. Í eðlilegu umhverfi hefðir þú farið í Seðlabankann og farið yfir stöðuna og reynt að leysa þau.“
Bætir Jón Ásgeir við að í kjölfarið hafi Seðlabankinn yfirtekið Glitni.
„Það var ótrúlegt að sjá það, að menn áttuðu sig ekki á hvað það myndi þýða fyrir heildarkerfið,“ segir Jón Ásgeir. „Ef Seðlabankinn myndi lýsa því yfir (í dag) að einn bankinn væri ónýtur, þá myndi markaðurinn taka því sem slíku að allir bankarnir væru ónýtir, sem gerðist 24 tímum síðar.“
Í þættinum Mannamál er Jón Ásgeir svo spurður hvort það hafi hlakkað í Seðlabankastjóra að neita Glitni um aðstoð. Jón Ásgeir svarar:
„Honum þótti þetta ekki leiðinlegt.“