Jón ásgeir: „hún ætti að sitja inni enn þá“

„Hrunamálið var of stórt mál fyrir okkur til að taka á því. Það hefði átt að kalla til erlenda sérfræðinga. Það hefði jafnvel átt að fá erlenda dómara til að skoða málin líka. Þetta litaðist svakalega af reiði, það var búin til sú saga að þetta væri allt sjö, tíu, tólf aðilum að kenna, þegar við erum loksins í dag að tala um að það gæti hafa verið krónan, að hún hafi verið stór hluti í þessu.“

Þetta sagði Jón Ásgeir Jóhannesson en hann var gestur Sigmundar Ernis í þættinum Mannamál sem sýndur var hér á Hringbraut í gærkvöldi. Í þættinum fór Jón Ásgeir ítarlega í saumana á Baugsmálinu, átökin við Davíð og Sjálfstæðisflokkinn, fall Glitnis og hvaða áhrif allt þetta hafði á fjölskylduna. Þá telur Jón Ásgeir að aðalsökudólgurinn í Hruninu hafi verið krónan.

„Þegar seðlabankinn var kominn með vextina upp í sautján, átján prósent, þá voru bankarnir enn þá að lána erlenda mynt á hálf prósent vöxtum. Í hvað fór fólkið, í hvaða mynt fór það? Það fór náttúrulega í það þar sem það borgaði minnstu vextina,“ sagði Jón Ásgeir.

Sigmundur Ernir spurði þá hvort setja ætti krónuna í tukthúsið. Jón Ásgeir svaraði að bragði:

„Definitely og hún ætti að sitja inni enn þá.“

Þá var Jón Ásgeir spurður hvort hann teldi að krónan væri helsta ástæðan fyrir Hruninu, hvort krónan væri mesti sökudólgurinn.

„Gagnvart heimilum í landinu þá er alveg klárt að það er krónan sem verður til þess hvað þau lenda illa í þessu,“ svaraði Jón Ásgeir og bætti við: „Sumir eru ekki tilbúnir að heyra það í dag en ég held að eftir fimm til tíu ár verði það niðurstaðan. [...]Ég held að bankarnir hefðu ekki lent í þessum vandræðum hefðu þeir haft betri aðgang að þessu stuðningskerfi sem seðlabankarnir eru, hefðum við verið með aðra mynt.“