Jón Ásgeir Jóhannesson, fyrrum aðaleigandi Baugs Group, sem átti Haga, en misstu þá í hendur kröfuhafa eftir hrun, hyggst bíða fram á aðalfund í júní með að bjóða sig fram til stjórnar í Högum á ný að því er Fréttablaðið greinir frá.
Eins og Viðskiptablaðið greindi frá í gærnáði Jón Ásgeir ekki kosningu í stjórn Haga á hluthafafundi félagsins á föstudag, en 365 miðlar hf., félag konu hans Ingibjargar Pálmadóttur, átti samkvæmt hluthafalista á vef félagsins 2,76% um áramótin. Í október var sagt frá því að félagið hefði keypt rúmlega 3% hlut í Högum, en árið 2016 keypti annað félag í eigu Ingibjargar tæplega 1% hlut.
Nánar á
http://www.vb.is/frettir/jon-asgeir-bidur-fram-i-juni/152138/