Jón atli nýr rektor háskólans

Jón Atli Bene­dikts­son prófessor var í gærkvöld kjör­inn rektor Há­skóla Íslands með 54,8% at­kvæða. Alls kaus rösklega helmingur kosningabærra manna, en á kjörskrá voru ríflega 14 þúsund manns, stúdentar, kennarar og starfsfólks skólans. Jón Atli naut meirihluta stuðnings innan raða stúdenta sem og starfsmanna og kennara skólans.


Hann tekur við embætti rektors 1. júlí af Kristínu Ingólfsdóttur sem gegnt hefur embættinu í áratug.


Á meðal starfs­manna með há­skóla­próf sem hafa heilt at­kvæði var kjör­sókn 87,62% og hlaut Jón Atli 527 at­kvæði í þeim flokki og Guðrún Nordal, keppinautur hans í seinni umferð, 400 atkvæði.


Á meðal starfs­manna með há­skóla­próf sem hafa hálft at­kvæði hlaut Jón Atli 93 at­kvæði og Guðrún 76.