Jólamatur: verðlækkun í víði og fk

Jólamatur hefur oftar hækkað í verði en lækkað í flestum verslunum frá því í fyrra, að því er fram kemur í nýrri verðkönnun ASÍ. Hér skera Fjarðarkaup og Víðir sig úr, en báðar verslanirnar hafa oftar lækkað verð en hækkað.

Verslanirnar sem hafa frekar hækkað verð en lækkað eru Bónus, Nettó, Krónan, Hagkaup og Samkaup-Úrval. Verslunin Iceland hefur jafn oft lækkað og hækkað verð á milli ára. 

Í öllum verslunum hafa mjólkurvörur hækkað mikið í verði á milli ára, sem dæmi hefur ¼ l. af rjóma frá MS, sem er mikið notaður í matseld yfir jólahátíðina, hækkað í verði síðan í fyrra. Mesta hækkunin er 31% hjá Iceland, 15% hjá Hagkaupum, 10% hjá Samkaupum-Úrval, 8% hjá Víði, 7% hjá Bónus, Krónunni og Fjarðarkaupum og 5% hjá Nettó. Matreiðslurjóminn frá MS ½ l. hefur einnig hækkað mikið í verði en mesta hækkunin er 19% hjá Hagkaupum, 12% hjá Víði, 10% hjá Fjarðarkaupum, 9% hjá Bónus, Nettó og Krónunni, 8% hjá Iceland og 5% hjá Samkaupum-Úrval. Sem er langt umfram það sem hækkun vsk. á matvöru gaf tilefni til. 

Verð á sælgæti hefur ekki lækkað í samræmi við afnám sykurskatts. 135 gr. Nóa konfektkassi hækkaði í verði hjá fimm verslunum af 8 síðan í desember 2014. Mesta hækkunin er 13% hjá Nettó, 12% hjá Bónus, 8% hjá Samkaupum-Úrval, 5% hjá Krónunni og 1% hjá Víði en hefur lækkað í verði 15% hjá Iceland, 7% hjá Fjarðarkaupum og 3% hjá Hagkaupum. Af því sælgæti sem borið er saman á milli ára eru það aðeins Ferro Rocher, Celebrations og 600 gr. Lindu konfektkassi sem lækka í verði í öllum verslunum. 

Af öðrum vörum má nefna að bæði ORA grænar baunir í ¼ dós hafa hækkað í verði í öllum verslunum nema Iceland og agúrkusalatið frá ORA hefur einnig hækkað í verði hjá öllum verslunum nema verslunum Iceland og Hagkaupum.