Hamborgarahryggur virðist vera fastur liður á aðfangadagskvöldi hjá um helming Íslendinga að því er fram kemur í nýrri skoðanakönnun MMR á matarhefðum landsmanna á aðfangadag jóla.
Til gamans má geta að hefðir virðast ríkja hjá mörgum Íslendingum hvað varðar aðalrétt á aðfangadag, segir í tilkynningu MMR vegna könnunarinnar. Um 88% sem sögðust ætla að hafa hamborgarhrygg á boðstólnum þetta árið voru einnig með hann í fyrra. Það sama má segja um þá Íslendinga sem sögðust bragða á öðrum algengum aðalréttum á aðfangadag þar sem um 77% sem borða lambakjöt (annað en hangikjöt) þetta árið voru einnig með það í fyrra, um 70% þeirra sem sögðust borða rjúpur þetta árið nutu þeirra einnig í fyrra og 66% þeirra sem sögðust borða kalkún þetta árið borðuðu hann einnig árið 2014.
Af þeim sem tóku afstöðu sögðust 49,8% ætla að borða hamborgarhrygg á aðfangadag, 11,5% sögðust ætla að borða lambakjöt (annað en hangikjöt), 7,2% sögðust ætla að borða rjúpur, 8,2% sögðust ætla að borða kalkún, 3,8% sögðust ætla að borða svínakjöt (annað en hamborgarhrygg) og 19,5% sögðust ætla að borða eitthvað annað en fyrrgreinda kosti.