Jólagjöfin í ár

Skjótt skipast veður í lofti. Eftir stöðugar verðhækkanir var heimsmarkaðsverðið á hráolíu komið yfir 80 Bandaríkjadali í lok september og hafði ekki verið hærra í um fjögur ár. Þrátt fyrir að hafa hækkað um liðlega 30 prósent fyrstu níu mánuði ársins töldu flestir greinendur, sökum þess að útlit væri fyrir skort á framboði, engar olíuverðslækkanir vera í spákortunum heldur stæðu fremur líkur til þess að verðið myndi halda áfram að hækka á næstu mánuðum. 

Fyrir íslensku flugfélögin, sem hafa staðið höllum fæti og þurfa að greiða jafnvirði um 60 milljarða króna fyrir þotueldsneyti á þessu ári, voru þetta sérstaklega váleg tíðindi. Sem betur fer gengu spárnar ekki eftir heldur hefur heimsmarkaðsverð á olíu þess í stað hrunið um nærri 40 prósent á aðeins tæplega þremur mánuðum og stendur núna í um 53 dölum fatið.

Hvað gerðist? Orsakirnar eru auðvitað margþættar en skyndilegt offramboð af olíu, einkum vegna aukinnar framleiðslu vestanhafs, ásamt væntingum um minni eftirspurn og hægari vöxt í alþjóðahagkerfinu sökum viðskiptastríðs Bandaríkjanna og Kína skýra ekki hvað síst þetta mikla verðfall. Þá hefur ákvörðun aðildarríkja OPEC, samtaka olíuframleiðsluríkja, um að draga úr framleiðslu sinni í því skyni að reyna að vinna gegn frekari lækkun á olíuverði ekki skilað tilætluðum árangri.