Jóla- og hátíðarkokteillinn í ár sem gestirnir missa sig yfir

Í ár er það þessi jólakokteill sem gestirnir missa sig yfir. Bragðið er með klassísku jólaívafi, kanil, mandarínum og dökku rommi og gleður bragðlaukana, það má með sanni segja að bragðið sé lokkandi og jólaandinn svífi yfir með þessum kokteil.  Oddur Goði Jóhannsson á veitingastaðnum Burro & Steaks  & Pablo  Discobar við Veltusund 1 á heiðurinn af þessum kokteil og fékk Sjöfn Þórðar Odd Goða til að svipta hulunni af uppskriftinni fyrir lesendur.  Þennan verðið þið að prófa.

\"\"

 

Jólakokteillinn hans Odds Goða

45 cl dökkt romm 

15 cl lime safi 

15 cl hindberja puree 

Klípa kanil duft 

Mandarína til skrauts

Hristur samann og settur i highball glas með klaka svo fyllt upp með Sveinka Nocco en einnig er hægt að notað 7up eða sódavatn. Mandarínu tvist sem skraut/garnish. 

Gleðilega hátíð.