Jöklar fara stækkandi í ár

Talið er að jafnfallinn snjór á mörgum helstu jöklum Íslands hafi verið 12 til 14 metrar á síðasta vetri sem er með allra mesta móti sem þekkst hefur um langt árabil.

Þessi mikla ákoma merkir að jöklar fara nú fyrst stækkandi eftir að hafa hopað samfellt í mörg undanfarin ár, en þau tíðindi færa landsmönnum líka þau sannindi að vatnabúskapur landsins verður góður og tryggur á næstu árum.

Ekki hefur snjóað jafn mikið inn til landsins í aldarfjórðung hið minnsta. Á venjulegum gönguleiðum að fjallabaki var þriggja metra jafnfallinn snjór um síðustu mánaðamót þar sem vanalega er auð jörð á þeim tíma. Upp til fjalla er ástandið ekki skaplegra, en sem dæmi má nefna að Fimmvörðuháls sem er vinsæll til gönguferða strax um mánaðamótin maí og júní er illfær um þessar mundir, en eins og myndin sem fylgir þessari frétt ber með sér, en hún var tekin um síðustu helgi, sér ekki í auða jörð við Baldvinsskála.

Því gildir það svo um þessa vinsælu gönguleið, sem og aðrar utan byggðar, að fara verður þar með gát og leita sér upplýsinga hjá þar til bærum aðilum áður en lagt er í hann, en margar þessar leiðir eru mun seinfarnari en einatt áður.