Í bíladelluþættinum Kíkt í skúrinn í kvöld verður Einar Gíslason, betur þekktur sem Einar í ET, heimsóttur, en hann á eitt af mögnuðustu einkafornbílasöfnum landsins.
Umsjármaður þáttanna, Jóhannes Bachmann segir að þarna sé á ferðinni gæðingur af manni og mikill sagnabrunnur þegar kemur að sögu bíla og innviðum þeirra, enda væri auðveldlega hægt að hafa Einar sem fastan lið í hverjum einsta þætti af Kíkt í skúrinn. Hér er eljumikill dugnaðarforkur á ferð með mikla bíladellu enda búinn að vera við loðin bíla frá blautu barnsbeini.
Í þessum þætti fáum við sjá frá honum Buick Electra 1960, en sá eðalvagn fannst fyrir fáum árum uppi á háalofti í refabúi, í fáránlega góðu ástandi enda þótt lyktin í bílnum eftir geymsluna hafi verið heldur svakaleg. Sem betur fer er hann blæjubíll svo það bjargaði öllu.
Í þætti kvöldsins verður einnig fjallað Cadillac-klúbbinn sem var á ferðinni á menningarnótt. Þar fá áhorfendur að líta sjlafan helgidóm klúbbsins en hann heldur upp á 10 ára afmæli sitt núna í desember næstkomandi og auðvitað með eðalstæl eins og þessir eðalbílar eru.
Loks verður fylgst með árlegri uppákomu þeirra Spessa og Dóra í Hafnarstrætinu, en þeir fá til sín mikinn fjölda af mótorhjólafólki, eða vel yfir 200 hjól og eiga góðan dag saman, en meginástæðan er að koma saman hlusta á rokk og ról með mögnuðum hljómsveitum. Þeir hefja þetta allt með því að allir setja hjól sitt í gang og hlusta eftir gítarsólói í upphafi lags svo gefa þeir öllum hjólum inn á sama tíma í takt við hljómsveitina sem spilar og endar með mögnuðu rokklagi og þöndum hjólum til að minnast fallinna félaga í gegnum tíðina.