Bakarinn og veitingamaðurinn Jói Fel gekkst undir bráða hjartaþræðingu í gær eftir að hann hafði fundið fyrir miklum líkamlegum óþægindum.
„Þurfti að fara í hjartaþræðingu og var CX æðin 100 prósent stífluð sem er víst ein af þessum stóru aðal æðum,“ skrifar Jói og lýsir aðdragandanum í færslu á Instagram.
„Dagurinn byrjaði í vinnunni eins og venjulega, en byrjaði að svitna og fá mikinn svima. Verk í handlegg og svo í brjóstið. Auðvitað hringdi ég í konuna mína sem er hjúkrunarfræðingur og fer hún með mig beint ábráðamóttökuna á borgarspítalanum þar sem hún vann áður. Var skoðaður fram og til baka og var svo keyrður i sjúkrabíl með blikkandi ljósum á Landspítalann. Var kominn i aðgerð nokkrum mínútum seinna.“
Þá segir hann að allt sé í besta standi og hann verði kominn í daglega rútínu fljótlega.
Jói sem er mikill matgæðingur hefur birt myndir af matnum sem honum er boðið upp á, á spítalanum, og virðist ekki vera parsáttur.