Johnson og gove gætu verið í vanda

Þeir Boris Johnson og Michael Gove, báðir framámenn í breska Íhaldsflokknum, gætu verið í vanda. Þeir voru báðir framarlega í flokki opinberra samtaka Brexit-sinna í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar 2016, Vote Leave, sem í vikunni viðurkenndi að hafa brotið kosningalög.
 

Vote Leave dró til baka áfrýjun sína vegna úrskurðar kjörstjórnar um lögbrot samtakanna. Þau voru staðin að því að flytja hundruð þúsunda punda framlög til sjálfstæðs hóps Brexit-sinna sem kallaðist BeLeave. Breska helgarblaðið Observer birti gögn fyrir ári síðan sem bentu til sektar Vote Leave. Þá sagði Johnson greinina algjöran þvætting og Brexit-sinnar hafi hlotið meirihluta atkvæða á heiðarlegan hátt. Þegar Guardian vildi fá viðbrögð hans við játningu samtakanna fékk blaðið þau svör frá ráðgjafa hans að hann vildi ekki tjá sig um málið. Gove svaraði heldur ekki fyrirspurnum Guardian, en áður hafði hann sagt að hann mætti ekki tjá sig um málið þar sem það væri í áfrýjunarferli.

Nánar á

http://www.ruv.is/frett/johnson-og-gove-gaetu-verid-i-vanda