\"Ég held ég hafi ekki verið svona léttur á fæti frá þvi ég var strákur heima í sveitinni í Ölfusi,\" segir John Snorri Sigurjónsson eftir það einstæða afrek sitt að toppa K2, eitt illkleifasta fjall á jörðinni, í fyrstu tilraun, en hann var 88 kíló þegar hann hélt út til Pakistan í vor og kom 71 kíló til baka.
Hann er gestur Sigmundar Ernis í Mannamáli kvöldsins í einkar tilfinningaríku og einlægu viðtali; segist hafa klifið tindinn með pabba sínum heitunum, Sigurjóni Bláfeld, sem var þá nýlega fallinn frá - og fundið fyrir honum í hverju skrefi. Gangan hafi verið farin til að heiðra minningu pabba.
Aðeins 240 manns hafa komist á K2 um dagana, sem er ekki aðeins þverhnípt og illkleift heldur slútir það víða fram á uppleiðinni - og snjóflóð eru raunar þar svo tíð og veðurlag slæmt að oft og tíðum líða nokkur ár á milli þess sem menn geta klifið fjallið. Hópur Johns Snorra var til að mynda sá fyrsti sem komst á topp K2 frá því árið 2014, en ellefu voru í grúppu Íslendingsins á toppnum, yfir fimmtíu manns úr öðrum leiðangrum á fjallið á sama tíma urðu frá að hverfa vegna veðurs eða veikinda.
\"Ég varð að útiloka dauðahugsanirnar allan tímann,\" segir John Snorri, \"sjötíu prósent af svona fjallgöngu er i hausnum á manni, mikill minni hluti hennar er líkamlegt erfiði. Líkaminn er þó allan tímann á meðan á uppleiðinni stendur að telja huganum trú um að hann geti ekki meira, en þá gildir einmitt einbeitingin; að útoloka þetta nöldur skrokksins,\" segir fjallagarpurinn í þættinum.
Lína Móey, konan hans, sem gengur með þeirra annað barn, en sameiginlega eiga þau bráðum sex krakka, tók það loforð af manni sínum áður en hann hélt út í fjögurra mánaða leiðangurinn að ef einhver í hópnum slasaðist skyldi hann hugsa fyrst og síðast um sjálfan sig - og þetta hafi reynst erfið tilhugsun á leiðinni upp, því ekkert væri jú mannlegra en að leggja öðrum hjálparhönd í erfiðum aðstæðum; hann yrði að láta slíkt vera ef hann stæði við loforðið sem hann gaf konu sinni, sem og varð raunin.
Hann lenti í snjóflóði neðarlega í fjallinu sem hefði hæglega getað kostað hann lífið, eins og svo marga raunar sem leggja á K2, en nærfellt þriðjungur þeirra sem hefur reynt við tindinn hefur tapað lífi sínu á leiðinni upp. \"Þetta er auðvitað klikkun,\" viðurkennir kappinn \"og eitt stórt egó, það er ekki til sjálfhverfara sport en fjallaklifur,\" bætir hann við, eiginlega enn í geðshræringunni að hafa sigrað fjallið og skilað sér heim að lokum..
Mannamál byrjar klukkan 20:30 í kvöld.