Gert grín að hatara á hbo: sjáðu myndbandið

Breski þáttastjórnandinn John Oliver fjallaði um Hatara í geysivinsælum þætti sínum Last Week Tonight á bandarísku sjónvarpsstöðinni HBO í gær. Um er að ræða fréttaskýringarþátt með afar gamansömum tóni.

Oliver gerði gys að nokkrum Eurovision atriðum en íslenska atriðið vakti sérstaka athygli hans. Þótti honum það mest sláandi og segir það hafa farið allt aðra leið en aðrir keppendur. Hann sagði að loks væri komið svar við spurningunni: „Hvað myndi gerast ef þú myndir dreifa englaryki yfir sýningu hjá Criss Angel?“

Oliver spilaði myndbrot af Hatara að lýsa sveitinni, þar sem Matthías söngvari segir: „Við erum íslenska, margverðlaunaða, andkapítalíska, teknó gjörnings BDSM hljómsveitin Hatari.“

Hann segir það gott að Hatari hafi komið þessu á hreint, því annars hafi hann haldið að um væri að ræða „norska, verðlaunatilnefnda, frumfasista, industrial, PBW MILF hljómsveit, en það var algjör reginmisskilningur hjá mér.“

Oliver bendir á að Hatari hafi ákveðið að fara gegn áralangri hefð Eurovision um pólitískt hlutleysi með því að vekja athygli á ástandinu í Palestínu. Auk þess hafi þeir greint frá áformum sínum um að knésetja kapítalismann og að þátttakan í Eurovision hafi fært sveitina einu skrefi nær því.

Um hvað geri þá að sérfræðingum í alþjóðastjórnmálum bendir Oliver á að slík þekking sé þeim í blóð borið, enda sé Einar Stefánsson, trommari Hatara, sonur Stefáns Hauks Jóhannessonar, sendiherra Íslands í Lundúnum. Sýnt er frá myndskeiði úr morgunþættinum Good Morning Britarin, þar sem Einar er spurður út í þessi tengsl. „Svaraði“ hann með einhvers konar blöndu af rumi og djúpri andköf.

Að lokum segist Oliver glaður vilja ræða um Hatara í allt kvöld en að hann hafi því miður ekki tíma til þess. Þrátt fyrir að taka fyrir pólitískan vinkil Hatara í keppninni minnist Oliver ekki á þegar sveitin veifaði palestínskum fánum þegar tilkynnt var um stigagjöf almennings, en það hefur vakið mikla athygli og harðar deilur.

Innslagið í heild sinni má finna hér: