John mccain liggur fyrir dauðanum

John McCain, öldungadeildarþingmaður Repúblikana og fyrrverandi forsetaframbjóðandi í Bandaríkjunum, hefur ákveðið að hætta meðferð við heilakrabbameini sem hann hefur barist við síðan í fyrra. Fjölskylda hans greindi frá þessu í dag.

Á vef rúv má lesa um þetta og þar er vitnað í New York Times.

Í bandaríska dagblaðinu segir að fjölskylda McCains sé komin saman í Arizona og fólk honum nákomið fullyrði að stutt sé í að hans hinsta stund renni upp.

Meira á vef rúv hér