Donald Trump rak H.R. McMasters hershöfðingj úr embætti þjóðaröryggisráðgjafa Bandaríkjanna í kvöld og skipaði hans í stað einn helsta stríðshauk bandarískra stjórnmála John Bolton, fyrrum sendiherra. The New York Times skýrði frá þessu í kvöld.
Mikið umrót hefur verið utanríkis og öryggismálasveit forsetans. Nú er aðeins rétt rúm vika síðan Trump lét Rex Tillerson fara sem utanríkisráðherra og skipaði Mike Pompeo sem heftur verið forstjóri CIA.
John Bolton hefur starfað í nokkrum ríkisstjórnum Repúblíkana. Síðast var hann sendiherra Bandaríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum í tíð George W. Bush. Bolton gegndi þeirri stöðu frá því í ágúst 2005 þar til í desember 2006, þegar hann sagði af sér. Síðari ár hefur hann gegnt lögmannsstörfum í Washington og verið tíður álitsgjafi á Fox News sjónvarpsstöðinni.
Bolton hefur þótt herskár utanríkismálaráðgjafi og talsmaður harðrar utanríkisstefnu Bandaríkjanna, meðal annars í málefnum Írans.