Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar og Sanna Magdalena Mörtudóttir, borgarfulltrúi Sósíalistaflokksins í Reykjavík, tókust á í Silfri Egils í dag.
Í þættinum sagðist Sanna eiga von á því að það yrði farið aftur í verkfallsaðgerðir á meðan Jóhannes sakaði Sönnu um að fara með áróður af hálfu Eflingar.
Eins og fjallað hefur verið um síðastliðna daga standa viðræður yfir um nýjan kjarasamning fyrir Eflingu en verkfallsaðgerðum var frestað fram til sunnudagskvöld.
Það kemur í ljós síðar í dag hvort að verkfall hefjist að nýju og Sanna hallast að því að verkfall hefjist að nýju.
„Ég gæti trúað því. Við erum að horfa upp á baráttu verka- og láglaunafólks fyrir efnahagslegu réttlæti og við sjáum það að Efling hefur sýnt af sér samningsvilja. Efling hefur lagt fram þrjú tilboð en Samtök atvinnulífsins virðist ekki vera að haggast og neita því að slá af þeirra kröfum. Viðræðurnar hafa ekki strandað á Eflingu,“ segir Sanna en Jóhannes var ekki sammála.
„Sanna fer hérna með ágætis rullu úr áróðursherdeild Eflingar sem að snýr hlutunum upp að þetta sé ægileg láglaunastétt. Þernur og starfsfólk á hótelum sé á lægstu töxtunum og þar fram eftir götunum. Það er ekki svona. Ég hef orðið var við það í samfélaginu að fólk heldur að hótelþernur sé að fá á bilinu 300 þúsund á mánuði, sem er ekki rétt. Meðallaunin hjá ófaglærðu starfsfólki í þrifum er í kringum 480-500 þúsund. Fólk sem er á 12 tíma vöktum, sem er auðvitað erfitt, er með 700 þúsund á mánuði. Til samanburðar eru þetta laun sem eru 60-80 þúsund lægra en grunnskólakennara eftir fimm ára háskólanám eða 150 þúsund krónum hærra en laun grunnskólakennara eftir fimm ára háskólanám. Staðreyndir sem ég vill frekar horfa á. “