Jóhannes þór: ferðaþjónustan kemur betur undan sumri en búist var við

Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, segir ferðaþjónustuna koma betur undan sumri en búist var við. Jóhannes er gestur Lindu Blöndal í fréttaþættinum 21 á Hringbraut í kvöld, sem hefst klukkan 21:00.

„Hún kemur að sumu leyti betur undan sumri heldur en einhverjir voru að velta fyrir sér í vor, eftir áföll vorsins,“ segir Jóhannes og vísar þar til gjaldþrots WOW air undir lok mars. Búist var við því að fall WOW myndi hafa stórtæk áhrif á ferðaþjónustuna en þau hafa reynst minni en á horfðist.

Hann bendir til dæmis á að gistinóttum hafi fjölgað alls staðar á landinu, að undanskildu höfuðborgarsvæðinu. „Við erum að sjá ánægjulegar tölur um að það séu fleiri gistinætur heldur en í fyrra, á öllum svæðum landsins nema höfuðborgarsvæðinu reyndar. Það er mjög ánægjuleg þróun. Við höfum verið með markmið um meiri dreifingu ferðamanna mjög lengi þannig að það er gott að sjá þetta.“

„Við höfum líka verið að sjá að tekjur í íslenskum krónum, útgjöld ferðamanna í íslenskum krónum, þau eru ekki nema 8 prósentum lægri heldur en í fyrra. Það er eitthvað sem menn áttu von á að yrði ennþá neðar ef við horfum á það að fjöldinn er tæplega 14 prósentum minni. Þetta segir okkur það að ferðamenn eru að eyða meiru á landinu heldur en þeir voru að gera og við áttum von á,“ bætir Jóhannes við.

Airbnb heimagisting dregist saman

Gistinóttum hefur fækkað á höfuðborgarsvæðinu og virðist hluta skýringarinnar á því vera að finna í því að Airbnb heimagisting hefur dregist saman hér á landi.

„Við höfum séð það að heimagistingin hefur dregist aðeins saman og mátti reyndar alveg gera það vegna þess að við höfum verið með óvenju háar prósentur í heimagistingu miðað við nágrannalönd okkar. Ég held að sú tala sé ekki nema fimm prósent í Svíþjóð en hefur verið í 20 prósentum á köflum hér. Þannig að það jafnast þá heldur betur út,“ segir Jóhannes.

Það sé líka jákvætt þar sem íbúðir sem hafa verið notaðar til heimagistingar, sérstaklega íbúðir á höfuðborgarsvæðinu, séu farnar að skila sér aftur inn á fasteignamarkaðinn og leigumarkaðinn.

Nánar er rætt við Jóhannes í 21 í kvöld.