Jóhannes Þór Jóhannesson, ellilífeyrisþegi, hefur hvorki séð tangur né tetur af tæplega átta milljóna króna bíl sem hann greiddi Ívari Mána Garðarssyni, framkvæmdastjóra Bensinlaus.is í tveimur greiðslum dagana 11. og 15. janúar í byrjun árs. Fjallað er um þetta í helgarblaði Fréttablaðsins.
Jóhannes gerði handskrifaðan sölusamning við framkvæmdastjóri Bensinlaus.is um kaup á Ford Mustang bifreið frá Bandaríkjunum í upphafi árs. Ekkert verksmiðjunúmer á bílnum kom fram á samningnum, en þar var hann skráður nýr, með ábyrgð umboðsaðila á Íslandi, en hvorugt reyndist rétt.
Jóhannes Þór kveðst hafa selt íbúð sína erlendis til að láta draum sinn rætast á gamals aldri um að festa kaup á draumabílnum. „Ég lifi það sennilega af að tapa þessum tæplega átta milljónum króna, en ég vil vekja athygli á svona sölumennsku sem hefur ekkert með heiðarleika að gera,“ segir hann í samtali við Fréttablaðið.
Lögmaður Jóhannesar er með málið í vinnslu, en síðustu viðbrögð sem hann fékk frá framkvæmdastjóra Bensinlaus.is vegna vanefnda á afhendingu á Ford Mustang draumabíl Jóhannesar Þórs, bárust um miðjan febrúar, mánuði eftir undirritun kaupsamningsins, en þar stóð orðrétt í stuttum skilaboðum: „Bíllinn er tilbúinn til innflutnings. Því fyrr sem eftirstöðvar eru greiddar, því fyrr kemst bíllinn í flutningsferli.“ Rétt er að taka fram að þá þegar var andvirði bílsins fullgreitt, að sögn Jóhannesar Þórs. Starfsmenn Eimskips hafa staðfest að umræddur bíll hafi enn ekki skilað sér á hafnarbakkann í Ameríku, sem bílasalan tilgreindi.
Ívar Máni, framkvæmdastjóri Bensinslaus.is, hefur hvorki svarað fyrirspurnum Fréttablaðsins né ítrekuðum símtölum eftir að þessi orðsending barst frá honum.