Jóhannes loftsson talar um flugeldamengun: „lygaáróður“ sem skaðar

Á vefsíðu Eiríks Jónssonar segir Jóhannes Loftsson, efnaverkfræðingur, að fullyrðingar um mengun af völdum flugelda væri „lygaáróður“ sem skaði björgunarsveitirnar og spyr sig hvar eigi eða hætta þegar kemur að því að vernda fólk. Hann segir að þær mengunartölur séu ekkert merkilegar og heilsuráðleggingar vegna þeirra séu ekki aðrar en þær að „blöðrustrákurinn gæti þurft að passa sig, en aðrir ekki.“

Jóhannes gagnrýnir einnig skýrslu Umhverfisstofnunar sem hann hefur ekki mikið álit á:

„Í nýlegri skýrslu Umhverfisstofnunar, þá yfirsást „sérfræðingum“ stofnunarinnar alveg að bera mengunargildin frá í fyrra saman við nokkur alþjóðleg viðmið, og fyrir vikið var skýrslan bara tölur á blaði sem hafa enga þýðingu.“

Þetta tal segir hann vera sérstaklega slæmt þar sem það beinist gegn flugeldasölu björgunarsveitanna, sem er mikilvægasta tekjulind þeirra.

Hann spyr sig að lokum hvar eigi svo að draga mörkin:

„En ef menn ætla að halda áfram að búa til slíkt blöðrustrákasamfélag þá má síðan halda áfram um hvar eigi að enda. Eigum við að banna of mikla götulýsingu á Laugaveginum til að trufla ekki einhverfa. Eigum við að banna liti til að þókna litblindum?“