Borið hefur á því að ungmenni í Danmörku setji nikótínpúða undir forhúðina, inn í leggöng og í rassinn. Fjallað var um þetta í fjölmiðlum í morgun. Mun það vera gert til að koma í veg fyrir að vera gripin af foreldrum og einnig til að sýnast fyrir vinum.
Stórleikarinn Jóhannes Haukur Jóhannesson furðar sig á þessu athæfi á Twitter:
„Þegar ég var ungur grunaði mig aldrei að ég yrði miðaldra týpan sem skildi ekki hvað þessu unga fólki gengur eiginlega til. En hér erum við...,“ segir hann og bætir við:
„Þetta eru reyndar Danir. Sem útskýrir hluta af þessu. En samt!“
Ragnar nokkur minnti hann á uppátæki ungmenna að setja eitthvað á „milli tánna“, Jóhannes kannast við það:
„Einmitt. Vodka í bómull á milli tánna. Ég prófaði það in the nineties. Virkar ALLS EKKI! Sat þarna eins og fífl í góðan klukkara. Meira ruglið.“
Stefán Hrafn Hagalín, deildarstjóri hjá Landspítalanum, bætir við:
„Krakkar í dag líka hættir að reykja og eignast börn. World gone mad!“